Ofar á Google og í gervigreind
Google segir sjálft að fjöldi umsagna og einkunn hafi áhrif á hvar fyrirtæki birtast í leit og á kortinu. Gervigreind eins og ChatGPT les líka umsagnir þegar hún mælir með stöðum. Hver ný umsögn telur.
Google-umsagnir fyrir lítil fyrirtæki
Einn QR-kóði biður alla viðskiptavini um álit. Fleiri umsagnir á Google, og þú heyrir strax ef eitthvað fór úrskeiðis.
Staðurinn þinn
Hvernig var heimsóknin?
Leitt að heyra. Hvað fór úrskeiðis? Takk. Hvað hefði mátt fara betur? Gaman að heyra!
Ekkert appSíðan opnast beint í vafranum.
Eitt smellEngin innskráning og ekkert form.
Fylgir reglum GoogleAllir fá Google-hnappinn, líka óánægðir.
Íslenska og enskaFerðamenn skipta yfir í ensku með einu smelli.
Þrjú skref, ekkert app og engin innskráning.
QR-kóðinn stendur á borðinu, við afgreiðsluna eða á kvittuninni. Síminn opnar síðuna beint, ekkert app. Þú getur líka haft spjaldtölvu við kassann.
Eitt smell, engin innskráning og ekkert form að fylla út.
Allir fá hnapp til að skrifa umsögn á Google. Hver sem er getur líka sent þér skilaboð sem enginn annar sér.
Allar einkunnir og skilaboð á einum stað. Gervigreind skrifar drög að svörum við Google-umsögnum á íslensku. Þú lest yfir, lagar ef þarf og birtir.
Google segir sjálft að fjöldi umsagna og einkunn hafi áhrif á hvar fyrirtæki birtast í leit og á kortinu. Gervigreind eins og ChatGPT les líka umsagnir þegar hún mælir með stöðum. Hver ný umsögn telur.
Óánægður viðskiptavinur getur sent þér skilaboð sem enginn annar sér. Þú færð þau strax í tölvupósti og getur lagað málið samdægurs.
Svör við umsögnum sýna að þér er ekki sama. Drögin eru tilbúin á íslensku og þú lest yfir áður en þú birtir.
„Gott kaffi en við biðum í korter eftir afgreiðslu.“
Takk fyrir heimsóknina, Guðrún, og fyrir að láta okkur vita. Korter er of löng bið og við tökum það til okkar. Vonandi fáum við tækifæri til að gera betur næst.
Afrita svarÞegar margir nefna það sama veistu hvað þarf að laga. Einkunnir og skilaboð sýna þér hvað gengur vel og hvað vantar, svo þú getir gert fyrirtækið betra.
4.990 kr.
+ VSK á mánuði fyrir hvern stað
6.188 kr. með VSK
Prófa frítt í 30 dagaFyrstu 30 dagarnir eru ókeypis. Engin binding.
Aukaþjónusta, aðstoð við að birtast í gervigreind: við bætum Google-prófílinn þinn, skráum þig á fleiri staði og fylgjumst vikulega með hvort gervigreind mælir með þér. Spurðu um verð.
Fyrstu 10 fyrirtækin: ég kem á staðinn, set upp kóðana og fer yfir þetta með starfsfólkinu, án endurgjalds.
Nei. Myndavélin í símanum les QR-kóðann og síðan opnast í vafranum. Ekkert app, enginn aðgangur og engin innskráning.
Já. Allir sem gefa einkunn fá hnappinn til að skrifa umsögn á Google, líka þeir sem gefa eina stjörnu. Umsögn felur hann aldrei fyrir óánægðum viðskiptavinum, því Google bannar að umsagnir séu síaðar á þann hátt.
Skilaboð til þín eru aukaleið sem allir hafa, ekki hjáleið framhjá Google. Ekki bjóða afslátt eða gjafir í skiptum fyrir umsagnir; það bannar Google líka.
Mjög lítið. Kóðinn stendur á borðinu eða við kassann. Það sem munar mestu er að starfsfólkið minnist á hann við alla viðskiptavini, ekki bara þá sem virðast ánægðir. Ég fer yfir þetta með ykkur við uppsetningu.
Já. Engin binding og enginn uppsagnarfrestur. Sendu mér línu og þú greiðir ekki fyrir næsta mánuð.
Einkunn er nafnlaus. Viðskiptavinurinn þarf hvorki að gefa upp nafn, netfang né símanúmer. Ef hann vill fá svar við skilaboðum getur hann sjálfur skilið eftir netfang, og það sérð bara þú.
Gögnin eru aldrei seld eða notuð í auglýsingar. Þegar þú biður um drög að svari fer texti umsagnarinnar til gervigreindarþjónustu sem skrifar drögin. Ef þú hættir er öllu sem tengist þínum stað eytt.
Á bak við Umsögn er ekkert símaver og enginn sölumaður. Bara ég, Jón Jónsson. Ég set kerfið upp með þér, svara sjálfur í símann og laga það sem þarf.